Tilkynning - ástand vallar
- vestarr33
- 22 hours ago
- 1 min read

Kæru meðlimir og gestir GVG, Nú er byrjað að hlýna í veðri og völlurinn er að þiðna eftir veturinn.
Við viljum minna meðlimi og gesti á að það má ekki slá bolta á upphafsteigum, brautum og inn á flatir. Það á helst að forðast að labba á flötunum líka. Einnig er stranglega bannað að fara á golfbílum inn á svæðið eins og stendur.
Við skulum öll reyna okkar besta að fara sem best með völlinn þar til jarðvegurinn er búinn að þiðna að fullu og þorna að mestu.
Tilkynnt verður þegar almenn spilun og/eða golfbílar er leyft.
Takk fyrir,
nefnd GVG





Comments