top of page
106805818_1565686233592846_6274339566359

Um Vestarr

Golfklúbburinn Vestarr var stofnaður haustið 1995 og var byrjað að byggja upp 9 holu golfvöll vorið 1996 í
Suður-Bár, sem er við austanverðan Grundarfjörð. Þar er gott land undir golfvöll, þurrt og hæðótt með góðu útsýni yfir fjörðinn. Völlurinn fékk nafnið Bárarvöllur en Bár (Bari) í Suður-Ítalíu og er talið að suðrænir sjómenn fyrr á öldum hafi haft kapellu í Bár og heitið á dýrlinga borgarinnar á Ítalíu. Nafnið Vestarr kemur frá landnámsöld en Vestarr Þórólfsson var fyrsti landnámsmaður í Eyrarsveit. Um hann má lesa í Eyrbyggju en hér er sögusvið hennar.

bottom of page