top of page

Áminning Meistaramót GVG 2026

Minnum fólk á að skrá sig í Meistaramótið í næstu viku!


Leikið verður á miðvikudegi, fimmtudegi og föstudegi.


Miðvikudagur og fimmtudagur er frjálst val með hvenær er ræst út, rástímar eru opnir til 21:00. Eina sem þarf er spilfélagi fyrir báða dagana upp á að votta skortkortið.


Á föstudeginum er ræst út kl 14:00 og svo grillveisla þegar allir eru búnir.


Keppt verður í eftirtöldum flokkum:

1.flokkur KK, forgjöf 0.0 – 12.0 höggleikur án forgjafar. 54 holur. Gulir/53 teigar.

2.flokkur KK, forgjöf 12.0 – 22.0 höggleikur án forgjafar. 54 holur. Gulir/53 teigar.

3. flokkur KK, forgjöf 22,1 - 54 höggleikur án forgjafar. 54 holur. Gulir/53 teigar.

1.flokkur KVK, forgjöf 0.0 – 27.0 höggleikur án forgjafar. 54 holur. Rauðir/45 teigar.

2.flokkur KVK, forgjöf 27.1 – 54.0 höggleikur án forgjafar. 54 holur. Rauðir/45 teigar.

Öldungaflokkur karla, höggleikur án forgjafar. 54 holur. Rauðir/45 teigar.

Opinn flokkur KK og KVK, forgjöf 36.1 – 54 punktakeppni en spilaðar verða 3x9 holur.

Unglingaflokkur KK og KVK. Spilað verður 3x9 holur.

Einnig er verðlaun fyrir flesta punktana.



 
 
 

Comments


© 2020 Golfklúbburinn Vestarr

bottom of page