top of page
96107452_1549964371831699_65595508335118

Grundarfjarðarvöllur

Að spila völlinn eins og heimamaður:

1. braut -  Fátt að varast í aðkomu að flöt. Í innáhögginu ber að varast að vera ekki of langur og frekar hægra megin en vinstra.  Þar er skurður sem liggur vinstra megin utan við flöt.

 

 

 

 

 



 

 

 

 

 

2. braut - Vera alls ekki hægra megin í upphafshögginu.  Ef kylfingar eru langir þá er hægt að slá inn á flöt og þá gildir að lenda boltanum vinstra megin, annars er bæði djúpur kargi og vatn sem geta gleypt boltann.  Ef kylfingar reyna ekki inn á þá eru hættur hægra megin líka, erfitt og djúpur kargi.

 

 

 

 

 

 



 

 

 

 

3.braut - fátt að varast annað en innáhöggið.  Lendingarsvæði er ekki of mikið og því gott að stilla sig vel af fyrir það högg.  Hægt er að lenda í hverju sem er ef innáhöggið klkkar, vatni, trjám og lúpínum.  Oftar en ekki er það týndur bolti ef innáhöggið klikkar.

 

 

 

 



 

 

 

 

 

 

4. braut - Vera örlítið vinstramegin en að passa sig á lúpínu sem er vítasvæði. Bolti sem lendir aðeins of stutt ef slegið er beint á pinna kastast til hægri.  Auðvita er best að slá bara inn á pinna og þeir sem geta það eru hvatttir til þess að gera það en þeir sem eru ekki of vissir ættu að vera frekar of langir en of stuttir og frekar til vinstri en hægri.

 

 

 

 



 

 

 

 

 

 

5. braut - Meðfram brautinni allri er kargi og möl vinstra meginn.  Aðalatriðið á þessari braut er að vera annaðhvort á braut eða hægra megin út af henni í karganum.  Í innáhögginu borgar sig að miða aðeins vinstramegin þar sem það kastast alltaf svolítið til hægri eftir lendingu. Flötin hallar mikið frá vinstri til hægri og eru í raun tveir stallar til staðar. Hægra megin við flöt er lítil gjá sem virkar sem nokkurskonar gras glompa. 

 

 

 

 



 

 

 

 

 

6. braut - Ef það er búið að vera þurrt í veðri borgar sig að lenda kúlunni í innáhögginu fremst á flöt þar sem flötin er oft mjög hörð þarna og getur fengið heljarinnar hopp.  Annars fáar hættur á þessari braut.

 

 

 

 



 

 

 

 

 

 

7. braut - Það er bannað að vera of langur í innáhögginu.  Best er að lenda kúlunni ofarlega í brekkuna en erfitt er að stöðva kúluna ef lent er upp á flötini.  Bak við flöt er ákveðið bakstopp og bakvið það er djúpur kargi. Það getur verið erfitt að koma sér út úr vandræðum þar.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 


8. braut - Lenda bara inn á flöt og þá er allt í fínum málum. Ef þurrt er í veðri þá er oft gott að lenda rétt fyrir framan flöt og leyfa boltanum að skoppa inn á flöt. Ef slegið er of langt yfir flöt þá er gríðarlega erfitt vipp í boði, þar sem það er vítasvæði hinum megin við flöt úr ákveðnum sjónarhornum. 

 

 

 

 



 

 

 

 

 

 

 

 

 

9. braut - Vallarmörk liggja vinstra megin alla brautina.  Kylfingar verða að passa sig í innáhögginu að vera ekki of langir.  Bæði eru glompur þar sem og hætta á að út fyrir vallarmörk. Best er að sleppa innáhöggi ef kylfingi finnst vatnið of langt frá og bara leggja upp. 

© 2020 Golfklúbburinn Vestarr

bottom of page